Námskrár

Stuðningsefni

Leita

Aðalnámskrá

Aðalnámskrár gegna margvíslegu hlutverki og eru allt í senn stjórntæki til að fylgja eftir ákvæðum laga, fyrirmæli fræðsluyfirvalda um skólastefnu og safn sameiginlegra markmiða skólastarfs í landinu. Aðalnámskrám er ætlað að samræma nám og kennslu að því marki sem þörf er talin á og tryggja rétt allra nemenda til tiltekinnar lágmarksmenntunar og jafnrétti til náms.

Öll skjöl
Algengar leitir
Íslenska
Stærðfræði
Tungumál
Læsi
Sjálfbærni
Heilbrigði
Velferð
Lýðræði
Mannréttindi
Jafnrétti
Sköpun
Hero Image

Aðalnámskrár

Hér er hægt að nálgast allar aðalnámskrár sem gefnar eru út af Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Aðalnámskrá framhaldsskóla er væntanleg á vefinn.

Stuðningsefni

Grunnþættir menntunar

Grunnþættir menntunar eru settir fram sem leið fyrir stjórnvöld til að einbeita sér sérstaklega að þáttum sem mikilvægt er að huga að í skólastarfi nútímans sem leitast við að mennta til framtíðar. Í sameiginlegum inngangskafla fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla eru skilgreindir grunnþættir í íslenskri menntun. Þessir grunnþættir eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun.

Lesa nánar